20.12.2011 12:55
Húmor
Augnlæknir hélt uppá fertugsafmælið sitt og fékk tertu sem var skreytt með 40 augum. Hann leit á tertuna og byrjaði að hlægja. Þegar hann var spurður hvað væri svona fyndið svaraði hann....
..Mér var hugsað til Einars, hann er kvensjúkdómalæknir og verður sextugur í næstu viku :)
16.12.2011 13:50
Ótitlað
Gamall maður hafði komið sér vel fyrir á landareign sinni.
Á jörðinni var stór tjörn og umhverfis hana var svolítill skógur.
Dag einn ákvað gamli maðurinn að fara niður að tjörninni og tók með sér stóra
fötu í því skyni að tína nokkra ávexti á leiðinni. Þegar hann nálgaðist
tjörnina heyrði hann hlátur og gleðiköll. Gamli maðurinn áttaði sig á því að
þarna voru ungar konur að baða sig naktar í tjörninni .
Hann hóstaði svo stúlkurnar gætu áttað sig á nærveru hans.
Þær syntu lengra út í tjörnina, hvar hún var dýpst, til að skýla sér. Ein
kvenanna hrópaði til hans:,,Við komum ekki uppúr fyrr en þú ert farinn!
" Það er allt í lagi: Ég kom ekki hingað til að horfa á ykkur naktar eða til
að reka ykkur upp úr," sagði gamli maðurinn.
,,Ég kom til að gefa krókódílnum að éta."
Boðskapur sögunnar: Þó gamlir menn hreyfi sig hægt, þá eru þeir snöggir að
hugsa !












